top of page

Áherslur okkar

Vistgæði húsa

Heilnæmt loft og góð lífsgæði eru grunnforsendur vandaðra mannvirkja. Við leggjum áherslu á lausnir sem tryggja gott inniloft, jafnvægi í raka, nægilega loftræstingu og notkun efna sem losa ekki skaðleg efni. Með þessu skapast öruggt og þægilegt umhverfi sem styður við heilsu, vellíðan og daglega notkun byggingarinnar til langs tíma.

Val efna

Efnisval er einn mikilvægasti þátturinn í vistfræði mannvirkja og hefur afgerandi áhrif á umhverfisáhrif, heilsu notenda og endingu byggingarinnar. Við nálgumst efnisval með tvennum hætti, annars vegar til að lágmarka neikvæð áhrif mannvirkja á umhverfið og hins vegar að tryggja að byggingar séu öruggar, heilbrigðar og endingargóðar . Með vönduðu efnisvali byggjum við mannvirki sem standast bæði tæknilegar kröfur og vistfræðilega ábyrgð.

Notkun efna

Rétt notkun byggingarefna er jafn mikilvæg og val þeirra og lykilforsenda fyrir góðum vistgæðum mannvirkja. Með réttri notkun efna eykst ending mannvirkja, viðhaldsþörf minnkar og líkur á skemmdum, myglu eða óheilnæmu innilofti dragast verulega saman. Jafnframt nýtast efni betur, sóun minnkar og heildarumhverfisáhrif framkvæmdarinnar verða minni.

Að nota efni á réttan hátt er því ekki aðeins tæknilegt atriði, heldur grundvallarþáttur í ábyrgri byggingarmenningu þar sem gæði, heilnæmi og sjálfbærni haldast í hendur

Traustafl ehf. 
 

Kt. 610596-2239

traustafl@traustafl.is

s. 858-5909

bottom of page