Vistgæði mannvirkja...
Heilbrigt jafnvægi milli náttúru og manns.
Við leggjum áherslu á heilbrigði húsa þar sem byggingunni líður vel
og skapar heilsusamlegt umhverfi fyrir fólkið sem notar hana.

Efnisval
Rétt efnisval hefur mikil áhrif á heilbrigði og vistgæði húsa. Byggingarefni geta haft áhrif á loftgæði, raka, mygluhættu og líðan fólks. Með vönduðu efnisvali, þar sem tekið er mið af eiginleikum efna og notkun þeirra, má skapa heilnæmara, endingarbetra og öruggara húsnæði.

Frágangur
Rétt notkun byggingarefna og vandaður frágangur eru grundvallaratriði í heilbrigðum húsum. Með faglegum vinnubrögðum, réttri uppsetningu og nákvæmum frágangi má tryggja betri endingu, minni viðhaldsþörf og heilnæmara innra umhverfi fyrir íbúa.

Gæði
Byggjast á samspili réttra efna og vandaðrar framkvæmdar. Rétt efnisval tryggir að byggingarefni henti aðstæðum og hlutverki, en faglegur frágangur tryggir gæði. Þegar þessir þættir vinna saman skapast traust, endingargott og heilbrigt húsnæði sem heldur gæðum til framtíðar.

Viðhald og nýsmíði
Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni í viðhaldi og nýsmíði, bæði fyrir stofnanir, fyrirtæki og húsfélög. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, rétt efnisval og faglegan frágang. Hvort sem um er að ræða minni viðhaldsverk eða umfangsmikla nýsmíði, vinnum við af ábyrgð og metnaði frá upphafi til verkloka.
Stofnanir og húsfélög
Við þjónustum húsfélög, fyrirtæki og stofnanir með fjölbreyttum verkefnum í viðhaldi, viðgerðum og nýsmíði. Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, skýra samskipti og áreiðanlega þjónustu. Hvort sem um er að ræða reglubundið viðhald, úrlausn vandamála eða stærri framkvæmdir, vinnum við markvisst að varanlegum lausnum og góðum árangri.

Lekaviðgerðir
Töluverður hluti verkefna okkar felst í að laga verk eftir aðra. Við greinum lekavandamál, finnum upptök þeirra og metum orsökina áður en ráðist er í framkvæmdir. Með faglegri nálgun og vönduðum frágangi finnum við varanlega lausn sem stöðvar lekann og tryggir betri endingu.
Um fyrirtækið
Rekið af Einari Péturssyni húsasmíðameistara
Byggingarstjóri I
Þjónustuaðili brunaþéttinga
Aðili að Meistarafélagi húsasmiða og Samtökum iðnaðarins.
Gæðakerfi fyrir byggingarstjóra og iðnmeistara skráð hjá HMS.
Allir starfsmenn fyrirtækisins eru faglærðir eða í námi húsasmíða.
Fyrirtækið er virkt í símenntun og eru þetta helstu námskeið sem
starfsmenn hafa sótt undanfarið.
--------------------------------------
Slagregnsprófun á ísetningu glugga
Inndælingar í sprungur og plötuskil
Brunaþéttingar
Raki og mygla í húsum
Raki og mygla í húsum 2
Raki og mygla í húsum 3
Frágangur raka-, vind- og vatnsvarnarlaga með efnum frá SIGA
Eigin úttektir í byggingaframkvæmdum
Lagning þakpappa - undirbúningur, áhættumat og forvarnir
Rakamælingar í byggingum
Ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda
Ábyrgð byggingastjóra
Aukið öryggi í bygginga- og mannvirkjagreinum



Gröfuþjónusta
Við bjóðum upp á gröfuþjónustu með 8 tonna Kobelco beltagröfu, sem hentar sérstaklega vel í fjölbreytt millistór verk þar sem krafist er góðs aðgengis, afkasta og nákvæmni.
Ýmis verk
Álfaberg leikskóli, Álfasteinn leikskóli, Beggubúð minjasafn, Engidalsskóli Hafnarfirði, Erluás sambýli, Hafnarhúsið Strandgötu, Hjalli leikskóli, Hnotuberg leikskóli, Hraunvallaskóli Hafnarfirði, Lækjarskóli Hafnarfirði, Menntasetrið Hafnarfirði, Músik og mótor Hafnarfirði, Norðurberg leikskóli, Pakkhúsið minjasafn Hafnarfjarðar, Setbergsskóli Hafnarfirði, Siggubúð minjasafn Hafnarfirði, Sívertsen húsið minjasafn Hafnarfjarðar, Skarðshlíðarskóli Hafnarfirði, Smáralundur leikskóli, Sólvangur Hafnarfirði og Sveinssafn eru nokkur þeirra verkefna sem fyrirtækið hefur sinnt og sinnir enn ásamt fjölda húsfélaga og fyrirtækja.
Traustafl ehf. tekur að sér fjölbreytt verkefni á sviði bygginga, viðhalds og viðgerða og leggur metnað í að skila vönduðu verki í hvert sinn. Við þjónustum einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög og stofnanir og leggjum áherslu á traust og góð samskipti við viðskiptavini okkar.
Við erum vön að vinna bæði á heimilum fólks og í atvinnuhúsnæði þar sem snyrtimennska, fagleg vinnubrögð og virðing fyrir umhverfinu skipta miklu máli. Markmið okkar er að skila góðu verki, varanlegum lausnum og ánægðum viðskiptavinum.
-
Ál-kerfi, klæðningar, gluggar og hurðir
-
Húsaklæðningar
-
Rúðuskipti
-
Gluggaskipti
-
Lekaviðgerðir
-
Glugga og hurðaviðgerðir
-
Fjarlægja og hreinsa myglu
-
Parketlagnir
-
Sólpallar og skjólveggir
-
Uppsetning innréttinga
-
Viðhald húseigna
-
Þakviðgerðir
-
Uppsteypa
-
Léttir veggir - gips, fermacell eða timbur
-
Einangrun húsa
-
Þakviðgerðir
-
Gröfuvinna
-
Tjónaviðgerðir
Eru nokkur dæmi um verkefni sem við tökum að okkur að leysa
Sendu okkur skilaboð

























